
Morgunvaktin
Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Fjallað var um tré og trjágróður en Jón Gnarr, alþingismaður og fyrrv. borgarstjóri, vakti á dögunum athygli á að í Vesturbæ Reykjavíkur væru hálfdauð tré víða í görðum sem tími væri kominn til að fella. Heimir Björn Janusarson, garðyrkjufræðingur og umsjónarmaður Hólavallakirkjugarðs, staðfestir orð Jóns og segir mikilvægt að grisja í húsagörðum, það þurfi hins vegar að gera eftir kúnstarinnar reglum og best að hafa fagmenn með í ráðum.
Unnendur stangveiði eru að búa sig undir veiði sumarsins og sumsstaðar er veiði hafin. Margir njóta lífsins best á árbakkanum. Ingimundur Bergsson, framkvæmdastjóri Stangaveiðifélgas Reykjavíkur, spjallaði um veiðidellu og veiðivon.
Vera Illugadóttir sagði frá Kyrrahafseyjunum Vanúatú og sögu þeirra en síðustu ár hafa stjórnvöld selt útlendingum ríkisborgararétt fyrir um 16 milljónir íslenskra króna. Margir vafasamir auðmenn og aðrir hafa nýtt sér þetta.
Tónlist:
Hymns to the silence - Van Morrison,
Song of home - Van Morrison,
Green green grass of home - Örvar Kristjánsson.

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.