Morgunvaktin

Leyft öllum aldurshópum

Heimsglugginn, hávaðamengun og fálkuorðuhafi

Bogi Ágústsson settist við Heimsgluggann. Nató-fundurinn í Haag var helsta mál á dagskrá, Bogi ræddi við Davíð Stefánsson, formann Varðbergs, samtaka um vestræna samvinnu og alþjóðamál. Bresk stjórnmál voru einnig rædd en sparnaðaráform ríkisstjórnarinnar í velferðarmálum mætir andstöðu í þingflokki Verkamannaflokksins.

Hávaðamengun hefur meiri áhrif á heilsuna heldur en þekktari skaðvaldar eins og óbeinar reykingar og snerting við blý. Yfir 110 milljónir manna í Evrópu þurfa að þola mikla hávaðamengun og fjöldi fólks deyr eða missir heilsuna ár hvert vegna sjúkdóma sem tengja má við hávaða. Við töluðum um hávaða, hljóðvist og hvað er hægt að gera í málunum.

Meðal þeirra sem sæmdir voru fálkaorðunni á þjóðhátíðardaginn var Bjarki Sveinbjörnsson tónlistarfræðingur fyrir “framlag til varðveislu, rannsóknar og miðlunar íslenskrar tónlistarsögu.” Tónlistarsagan er merkileg og mikilvægt að halda henni til haga; Bjarki kom til okkar.

Tónlist:

Ragnar Bjarnason, Hljómsveit Svavars Gests - Nótt í Moskvu.

KK band - Þjóðvegur 66.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Morgunvaktin

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Þættir

,