
Morgunvaktin
Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Varnar- og öryggisstefna Íslands var samþykkt í vikunni á Alþingi. Um hana ríkti þverpólitísk sátt. Sóley Kaldal, áhættustýringar- og öryggisverkfræðingur, fór yfir stefnuna með okkur. Hvað er gott í henni og hvað vantar?
Sigurjón Ólafsson ráðgjafi talaði við okkur um stafvæðingu samfélagsins, sem hann telur að einhverju leyti hafa gengið of langt. Að minnsta kosti þyrfti að bjóða fólki upp á þjónustu í raunheimum áfram þó að hægt sé að gera ýmislegt í gegnum netið. Stór hópur samfélagsins hefur að hans mati verið útilokaður frá ýmsu með of mikilli og hraðri stafrænni þróun.
Í síðasta hluta þáttarins endurlékum við umfjöllun Magnúsar Lyngdal um Jussi Björling.
Tónlist:
Vilhjálmur Vilhjálmsson - Hún hring minn ber.
Tom Jones - Green green grass of home.

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.