
Morgunvaktin
Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Allt frá því að hringvegurinn um Ísland varð að veruleika fyrir rúmum fimmtíu árum síðan hefur verið vinsælt að fara hringinn í kringum landið, og ekki ólíklegt að það sé á dagskránni hjá einhverjum hlustendum í sumar. Nú er komin út ný bók um hringveginn, um þessi merku tímamót sem opnun hans var og lífið í landinu fyrir og eftir. Arnþór Gunnarsson sagnfræðingur skrifaði bókina og sagði frá.
Á seinni tímanum voru þýsk málefni og HM í fótbolta á dagskrá. Arthúr Björgvin Bollason fjallaði um bæði stjórnmál og menningu, Víkingur Heiðar Ólafsson kom við sögu.
lllugi Jökulsson hélt svo áfram umfjöllun um þjóðirnar á HM í fótbolta sem hefst í næstu viku; hann segir okkur frá því skrítna og sérstaka og beindi í dag sjónum einkum að Úsbekistan og Kongó.
Tónlist:
Joni Mitchell - House Of The Rising Sun.
Brimkló - Þjóðvegurinn.
Víkingur Heiðar Ólafsson - Piano Sonata No. 30 in E major, Op. 109 : I. Vivace ma non troppo - Adagio espre.

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.