
Morgunvaktin
Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Söguleg úrslit nýafstaðinna þingkosninga í Japan voru helsta efni Heimsgluggans að þessu sinni. Bogi Ágústsson fór yfir niðurstöðurnar með Kristínu Ingvarsdóttur, lektor í japönskum fræðum við HÍ.
Græningjar féllu frá áður boðuðu framboði til Alþingis en stefna á framboð næst. Kikka Sigurðardóttir rithöfundur sem fer fyrir Græningjum segir stjórnmálaflokkana ekki sinna umhverfismálunum sem skildi og boðar aðhald á nýju kjörtímabili.
90 ár eru í dag síðan Þórbergur Þórðarson var dæmdur í Hæstarétti Íslands fyrir að kalla Adolf Hitler Þýskalandskanslara sadista í grein í Alþýðublaðinu. Soffía Auður Birgisdóttir, bókmenntafræðingur og vísindamaður við Rannsóknasetur HÍ á Höfn í Hornafirði, rifjaði málið upp.
Songbird - Kenny G.,
En frábær hugmynd - úr Ávaxtakörfunni,
Afmælisdiktur - Þórunn Lárusdóttir.

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.