
Morgunvaktin
Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Í þættinum var fjallað um aðstæður og starfsskilyrði fyrirtækja í landinu sem flokkast til smárra og meðalstórra. Magnús Árni Skúlason hagfræðingur hefur gert úttekt á högum slíkra fyrirtækja sem leiðir eitt og annað forvitnilegt í ljós.
Svo voru það dönsku málin. Borgþór Arngrímsson sagði okkur frá breytingum á danska eftirlaunakerfinu, það á að hækka eftirlaunaaldurinn þar í landi. Breytingar á bæði flugi og annars konar samgöngum komu líka við sögu.
Raforkuverð hefur hækkað skarpt á undanförnum misserum, talsvert umfram verðbólgu. Undan því hafa atvinnurekendur kvartað; ekki síst bændur enda dæmi um að rafmagnsreikningurinn hafi meira en tvöfaldast á þremur árum. Reikningar heimila hafa líka hækkað en þar er notkunin talsvert minni. Við spurðum hverju sætir. Sigurður Ingi Friðleifsson, sviðsstjóri hjá Umhverfis- og orkustofnun, kom til okkar.
Tónlist:
Duke Ellington og fleiri - Jeep's blues.
Teitur Magnússon - Háflóð.
Söngsveitin Fílharmónía og Steingrímur Þórhallsson - Meyjarmissir (Björt mey og hrein).

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.