
Morgunvaktin
Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
85 ár voru á sunnudag liðin frá því að ein sögufrægasta sjóorusta síðari heimsstyrjaldarinnar fór fram vestur af Reykjanesi, milli orrustuskipanna Bismarck og Hood. Við rifjuðum þá sögu upp í þættinum í dag með Gunnari Alexander Ólafssyni hagfræðingi, sem þekkir söguna vel.
Arthúr Björgvin Bollason var á sínum stað með Berlínarspjall. Þýsk stjórnmál voru til umfjöllunar, en margir velta nú fyrir sér miklu fylgi AfD flokksins í fylkingu Sachsen-Anhalt. Flokkurinn boðar meðal annars róttækar breytingar í menntamálum.
Heimsmeistaramót karla í fótbolta hefst eftir rétt rúmar tvær vikur. Illugi Jökulsson hélt áfram að segja forvitnilegar sögur af fótbolta og fólki í tengslum við mótið og í dag var J-riðill á dagskrá. Þar er meðal annars stórveldið Argentína - en líka Jórdanía, sem á sér merka sögu.
Tónlist:
Miles Davis og fleiri - Moon dreams.
Miles Davis og fleiri - When I fall in love.

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.