
Morgunvaktin
Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Það styttist í sveitarstjórnarkosningar. Á kjörtímabilinu sem nú er að ljúka hefur slitnað upp úr meirihlutasamstarfi í sex sveitarfélögum. En hvers vegna springa meirihlutar í sveitarstjórnum? Þorsteinn Gunnarsson borgarritari hefur rannsakað það - hann skrifaði meistararitgerð um efnið; hún er glæný - Þorsteinn rabbaði við okkur um þennan anga stjórnmálanna.
Arthúr Björgvin Bollason sagði í Berlínarspjalli frá stjórnmálum og vandræðum kanslarans. Sömuleiðis frá því að ungt fólk í Þýskalandi mótmælir hugmyndum stjórnvalda þar um að taka upp herskyldu á nýjan leik.
Svo var það fótboltinn, merkilegu sögurnar á bak við liðin og þjóðirnar á HM í sumar. Illugi Jökulsson beindi sjónum einkum að Haití sem nú er á HM í annað sinn, það er rúm hálf öld síðan liðið var með síðast.
Tónlist:
Vilhjálmur Vilhjálmsson - Og co.

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.