Morgunvaktin

Heimsgluggi, veðruð málverk og námsgögn í skólum

Bogi Ágústsson settist við Heimsgluggann og ræddi meðal annars um skosk og sænsk stjórnmál. Í Skotlandi hefur fyrrverandi framkvæmdastjóri Skoska þjóðarflokksins viðurkennt fjárdrátt, en hann lét flokkinn greiða fyrir ótrúlega hluti. Í Svíþjóð nálgast kosningar og miðað við skoðanakannanir fellur ríkisstjórnin þar. Við heyrðum líka af þýskum sjóliðsforingja sem komst lífs af í orrustu Bismarck og Hood og varð ræðismaður á Íslandi eftir stríð.

Listahátíð í Reykjavík hefst um helgina og fjölmargt er á dagskránni næstu vikur. Í Listasafni Reykjavíkur verður opnuð sýning með verkum þýsku listakonunnar Karin Sander sem hefur ræktað tengsl við Ísland með ýmsum hætti síðustu þrjátíu ár - og mörg verkanna eru innblásin af Íslandi, náttúru, menningu og samfélagi. Sýningarstjórarnir Markús Þór Andrésson og Ólöf Kristín Sigurðardóttir komu í heimsókn.

Mikil umræða hefur skapast um stöðu námsgagna hér á landi eftir skýrslu sem við ræddum hér á Morgunvaktinni í síðustu viku, þar sem fram kemur framlögin hér á landi eru brotabrot af því sem tíðkast á öðrum Norðurlöndum. Mikill tími kennara fer í semja námsefni í stað þess geta valið úr fjölbreyttu efni sem gefið er út fyrir alla. Við ræddum um námsgögn og menntamál við Magnús Þór Jónsson, formann Kennarasambands Íslands.

Tónlist:

Delizie Italiane - Come due stelle in cielo = Tvær stjörnur.

Tómas R. Einarsson, GDRN - Timinn er læknir.

Birt

28. maí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunvaktin

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Þættir

,