
Morgunvaktin
Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra var gestur Boga Ágústssonar í Heimsglugganum þennan morguninn. Þau ræddu alþjóðamálin vítt og breitt og stöðu Íslands í viðsjárverðum heimi.
Ríkisstjórnin boðar auðlindastefnu og auðlindagjöld - réttlát auðlindagjöld, samkvæmt stefnuyfirlýsingunni. Undir eru allar sameiginlegar auðlindir þjóðarinnar. Indriði H. Þorláksson, fyrrverandi ríkisskattstjóri, hefur lengi velt fyrir sér gjaldtöku af auðlindum.
Í síðasta hluta þáttarins ferðuðumst við aftur í tímann með Vilborgu Davíðsdóttur rithöfundi. Hún hefur valið sér persónur og sögusvið liðinna alda að skrifa um í bókum sínum og nú stendur mikið til: Annars vegar ætlar hún að flytja sjálfa Laxdælu á Sögulofti Landnámssetursins í Borgarnesi og hins vegar að kenna spuna á snældu á Landnámssýningunni í Aðalstræti í Reykjavík.
Tónlist:
Hljómsveit Magnúsar Ingimarssonar, Vilhjálmur Vilhjálmsson - Það er bara þú.
Páll Stefánsson, Gísli Ólafsson - Lækurinn (Stemma Páls og Gísla).

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.