
Morgunvaktin
Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Fjórar vikur eru til kosninga. Af því tilefni var fjallað um traust til Alþingis og stjórnmálanna almennt. Það mældist 27% í könnun Gallup í febrúar en var yfir 40% fyrir Hrun. Sigurður Kristinsson, heimspekingur og prófessor við Háskólann á Akureyri, ræddi um mikilvægi trausts og ástæður þess að traustið er ekki meira en raun ber vitni. Eins sagði Sigurður frá aðgerðum sem hrint hefur verið í framkvæmd til að auka - eða reyna að auka - traust.
Gæði nýrra íbúðahverfa hafa verið metin með nýjum aðferðum. Ásdís Hlökk Theodórsdóttir, skipulagsfræðingur og aðjúnkt við HÍ, sagði frá aðferðafræðinni og helstu niðurstöðum.
Í spjalli um sígilda tónlist fjallaði Magnús Lyngdal um sellóleikarann Yo Yo Ma og lék brot úr fallegum verkum sem hann hefur hljóðritað.
Tónlist:
Ungverskur dans - Berlínarfílharmónían,
King of the road - Roger Miller.

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.