Morgunvaktin

Leyft öllum aldurshópum

Krabbameinsmeðferðir, ástin á Liverpool og sígild tónlist

Fjallað var um stöðu krabbameinsmeðferða en fram hefur komið að biðtími er langur og fresta hefur þurft meðferð vegna manneklu og tækjabilana. Halla Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri Krabbameinsfélagsins, var gestur þáttarins.

Keppni í ensku knattspyrnunni er hafin. Margir Íslendingar fylgjast grannt með og eiga sér uppáhaldslið. Guðlaug Elísabet Ólafsdóttir leikkona er einlægur aðdáandi Liverpool, hún sagði frá hvernig það kom til, heimsóknum sínum á heimavöllinn Anfield og áhrifum af gengi liðsins á sálarástand sitt.

Í umfjöllun um sígilda tónlist sagði Magnús Lyngdal frá enska hljómsveitarstjóranum Sir Thomas Beecham og lék brot úr verkum.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Morgunvaktin

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Þættir

,