
Morgunvaktin
Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
250 ára afmæli Bandaríkjanna verður fagnað eftir rétt rúmar þrjár vikur, þann 4. júlí næstkomandi. Við fáum daglega fréttir af ýmsu sem gerist þar í landi og stjórnmál og menning þessa stórveldis hafa áhrif víða um heim. Við veltum fyrir okkur atburðunum sem urðu til þess að Bandaríkin voru stofnuð. Fyrsti kaflinn í sögu Bandaríkjanna. Sveinn Máni Jóhannesson sagnfræðingur þekkir þá sögu vel og hann kom til okkar.
Menning og listir voru á dagskrá á níunda tímanum. Við spjölluðum fyrst um menningarlífið á Austurlandi; ný menningarstefna hefur verið sett fyrir fjórðunginn en við spurðum um mikilvægi menningarlífs fyrir fólk og samfélag í spjalli við Jónu Árnýju Þórðardóttur, bæjarstjóra í Fjarðabyggð.
Svo var Magnús Lyngdal með okkur og að þessu sinni tók hann sjálfa sálumessu Mozarts fyrir. Um verkið sjálft má auðvitað hafa mörg orð en ekki síður ýmsar sögur - sannar og lognar – sem spunnist hafa um það.
Tónlist:
Goodman, Benny and his Sextet - Song of the islands.
Grettir Björnsson - Austfjarðaþokan.

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.