
Morgunvaktin
Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Halldór Laxness hafði mikil áhrif á íslenska tungu. Um þau áhrif verður fjallað á þingi í Eddu á fæðingardegi hans á morgun. Tveir fyrirlesara, Steinþór Steingrímsson og Ágústa Þorbergsdóttir, komu til okkar og sögðu frá. Steinþór hefur skoðað þýðingar Laxness og Ágústa rakið áhrif hans á nafngiftir barna, fyrirtækja og jafnvel hljómsveita.
Þórhildur Ólafsdóttir ræddi við okkur um spillingu í löggæslu og dómskerfi í Úganda. Nýlegt og skelfilegt morðmál hefur orðið til þess að um fátt annað er rætt í landinu.
Bára Grímsdóttir kvæðakona og formaður Kvæðamannafélagsins Iðunnar, kom svo í þáttinn og fór með nokkur kvæði.
Tónlist:
Clannad - Harry's game : theme.
Lúðrasveit verkalýðsins, 200.000 naglbítar - Láttu mig vera.
Mapumba - Mwafwako.
Steindór Andersen - Eiríkur formaður.
Dátar - Kling klang.

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.