
Morgunvaktin
Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Áttatíu ár eru liðin frá þjóðaratkvæðagreiðslu um sambandsslitin við Dani og nýju stjórnarskrána, í aðdraganda lýðveldisstofnunarinnar. Ragnheiður Kristjánsdóttir og Erla Hulda Halldórsdóttir, prófessorar í sagnfræði við Háskóla Íslands, rifjuðu atkvæðagreiðsluna upp. Þátttaka var næstum 100 prósent en rannsóknir þeirra Ragnheiðar og Erlu Huldu sýna að fólk hafi nánast verið þvingað til að taka þátt og greiða atkvæði með.
Borgþór Arngrímsson fór yfir dönsk málefni og Ívar Benediktsson handboltablaðamaður á handbolti.is talaði vítt og breitt um handbolta.
Sólin er komin - Mugison,
Summertime - Stan Getz,
Den danske sommer - Kandis,
Kletturinn - Mugison.

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.