
Morgunvaktin
Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Íslenskir kennarar eru ekki lakari en kennarar annars staðar. Þeir fá bara minna til að vinna með, því í nærri tuttugu ár hefur fjármagn til þróunar og kaupa á námsefni rýrnað verulega í íslenska skólakerfinu. Þetta er meðal þess sem kemur fram í skýrslu frá þróunarsjóði námsgagna. Áhrifin eru mælanleg - námsárangur er að falla, munur milli sveitarfélaga og eftir félagslegum bakgrunni hefur meiri áhrif á það hvernig börnum gengur í skólanum. Íris E. Gísladóttir, formaður stjórnar þróunarsjóðs námsgagna, kom á Morgunvaktina.
Prestur Íslendinga í Danmörku, Sigfús Kristjánsson, lætur senn af embætti þar. Hann þjónar fyrir altari í síðasta skipti í Kaupmannahöfn á morgun. Sigfús ræddi um þessi tímamót og það sem tekur við við Guðrúnu Hálfdánardóttur í Kaupmannahöfn.
Magnús Lyngdal var svo á sínum stað í síðasta hluta þáttarins með umfjöllun um sígilda tónlist. Hann fjallaði um frægustu hljómsveitir veraldar - fílharmóníusveitirnar í Vín og Berlín.
Tónlist:
Kristjana Stefánsdóttir - Fagra veröld.
KK, Jón Jónsson - Sumarlandið.

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.