
Morgunvaktin
Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Bogi Ágústsson fjallaði um erlend málefni í Heimsglugganum. Kosningaúrslitin í Portúgal á sunnudag voru rædd við Einar Loga Vignisson, og seinni helminginn ræddi hann ástandið á Gaza.
Við fjölluðum líka um fiskneyslu – sem stórlega hefur dregið úr á fáeinum áratugum. Hvernig ætli standi á því? Við veltum því fyrir okkur með Hafliða Halldórssyni matreiðslumeistara.
Í síðasta hluta þáttarins komu til okkar þau Kolbeinn H. Stefánsson dósent í félagsráðgjöf og Anna Björg Jónsdóttir yfirlæknir öldrunarlækninga á Landspítalanum. Við ræddum við þau um það hvernig það er að eldast á Íslandi.
Tónlist:
Tríó Guðmundar Ingólfssonar - Kirkjuhvoll.
Sigurður Skagfield - Á Sprengisandi.
Tríó Guðmundar Ingólfssonar - Vorblómin anga.

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.