Vestfirðir, börn, bækur og sígild tónlist
Við ræddum við Gylfa Ólafsson, bæjarstjóra í Ísafjarðarbæ. Gylfa líst ekkert sérstaklega vel á tillögur að breytingum á skiptingu þingsæta. Hann segir að hafa verði í huga að stjórnkerfið…
Hugmyndir innviðaráðherra um sameiningar fámennari sveitarfélaga hafa víða mætt andstöðu, til dæmis í Grýtubakkahreppi, og við ræddum við Þröst Friðfinnsson sveitarstjóra.
Valur Gunnarsson rithöfundur og sagnfræðingur ræddi við okkur um nýja bók sína, Grænland og fólkið sem hvarf, en bókin er sagnfræðirit og ferðasaga í bland.
Magnús Lyngdal sagði okkur hvernig best er að kenna börnum að nálgast klassíska tónlist.
Tónlist:
AIR Ensemble - Follow Me Up to Carlow.

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.