
Morgunvaktin
Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Bogi Ágústsson ræddi við Ásgeir Brynjar Torfason, ritstjóra Vísbendingar, um rof í alþjóðakerfinu og efnahagslegar afleiðingar þess, verðsveiflur á gulli, silfri og bitcoin.
Styrkur hefur fengist til að greina tækifæri til eflingar byggðanna frá Öxarfirði til Vopnafjarðar. Albertína Friðbjörg Elíasdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra, fór yfir möguleikana.
Nýr formaður Félags íslenskra bókaútgefenda, Anna Lea Friðriksdóttir, kom til okkar í síðasta hluta þáttarins. Hún var kjörin á dögunum og er fyrsta konan sem gegnir þessu virðulega embætti innan raða forleggjara bókaþjóðarinnar. Við spjölluðum um bækur - við gerum aldrei of mikið af því.
Tónlist:
Simon and Garfunkel - El condor pasa.
Placido Domingo - El condor pasa.
Ásgeir Jón Ásgeirsson - Trip to India.

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.