
Morgunvaktin
Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Guðni Th. Jóhannesson, prófessor í sagnfræði við Háskóla Íslands, hefur ekki setið með hendur í skauti eftir að hann lét af forsetaembættinu fyrir tveimur árum. Í dag kemur út eftir hann bókin Vald hinna veiku, saga landhelgismálsins 1971-1974.
Arthúr Björgvin Bollason sagði frá viðbrögðum Þjóðverja við niðurstöðum þjóðaratkvæðagreiðslunnar um ESB hér á landi, ræddi um komandi kosningar í Sachsen-Anhalt og um margt mislukkaða sameiningu þýsku ríkjanna tveggja.
Kaflaskil urðu í íslenskri fjölmiðlun í gær þegar síðasti sjónvarpsfréttatími Sýnar fór í loftið. Við ræddum um stöðuna á íslenskum fjölmiðlamarkaði, mikilvægi hefðbundinna fjölmiðla og lýðræði við Jón Gunnar Ólafsson, lektor við stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands.
Tónlist:
Bítlarnir - Do you want to know a secret.
Dúkkulísur - Svart-hvíta hetjan mín.

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.