Vestfirðir, börn, bækur og sígild tónlist
Við ræddum við Gylfa Ólafsson, bæjarstjóra í Ísafjarðarbæ. Gylfa líst ekkert sérstaklega vel á tillögur að breytingum á skiptingu þingsæta. Hann segir að hafa verði í huga að stjórnkerfið…
Um mánaðamótin lætur Jón Atli Benediktsson af embætti rektors Háskóla Íslands. Hann kom í kaffi og spjallaði um árin tíu í embætti, Háskóla Íslands, háskólasamfélagið í landinu og samstarf við erlenda skóla. Þá sagðist hann hverfa í sitt gamla starf við verkfræðideildina í haust.
Leikið var brot úr samtali Jökuls Jakobssonar og Sólveigar Eyjólfsdóttur um Jófríðarstaðaveg í Hafnarfirði - brot úr þáttaráð Jökuls Gatan mín frá 1973.
Magnús Lyngdal fjallaði um sígilda tónlist.
Tónlist:
Midnight train to Georgia - Gladys Knight and The Pips,
Gamla gatan - Björgvin Halldórsson.

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.