
Morgunvaktin
Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Fimmtán dagar eru til kosninga. Við ræddum málefni barna við Salvöru Nordal, umboðsmann Alþingis, og spurðum hvað er brýnast að stjórnmálin geri fyrir börn. Hún segir að þessi mál mættu vera meira áberandi í kosningabaráttunni.
Gunnlaugur Björnsson stjarneðlisfræðingur kom til okkar. Við ræddum um veðrið úti í geimi, og um James Webb sjónaukann.
Í síðasta hluta þáttarins kom Magnús Lyngdal til okkar með sígilda tónlist í farteskinu. Hann leyfði okkur að heyra brot úr verkum sem í eru einstaklega fallegar laglínur.
Tónlist:
Eyjólfur Eyjólfsson, Björk Níelsdóttir, Gadus morhua, Steinunn Arnbjörg Stefánsdóttir - Hvað er svo glatt.
Lyman, Arthur - Good morning starshine.

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.