
Morgunvaktin
Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Meiri líkur en minni eru taldar á forsendur kjarasamninga haldi ekki, enda verði verðbólga yfir 5 prósentum út árið. Þá er talað um þörfina fyrir nýja þjóðarsátt. Til þess að það gangi upp þurfa allir aðilar að því að leggja sitt af mörkum og það þarf að ríkja traust. En eru slíkar aðstæður uppi? Viktor Orri Valgarðsson stjórnmálafræðingur hefur rannsakað traust og hann ræddi við okkur.
Þórhildur Ólafsdóttir sagði okkur tíðindi frá Úganda, eins og hún hefur gert undanfarin misseri. Þetta var síðasti pistill Þórhildar frá Kampala, þar sem hún flytur þaðan innan skamms.
Formaður Þingvallanefndar, Sigurður Helgi Pálmason, kom í þáttinn. Nefndinni barst, eins og kunnugt er, ósk um leyfi fyrir að grafa upp bein Jónasar og greina þau. Nefndin taldi sig ekki hafa heimild til að veita slíkt leyfi. Við spjölluðum um þetta mál og um þjóðargrafreitinn og fleira er varðar Þingvelli við Sigurð Helga.
Tónlist frá útsendingarlogg:
Ríó tríó - Dýrið gengur laust.
Guðmundur Guðjónsson - Hvað er svo glatt.
Hljómsveit Carls Billich, Steindór Hjörleifsson - Einu sinni á ágústkvöldi.

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.