Morgunvaktin

Leyft öllum aldurshópum

Heimsgluggi, fíknivandi barna og latína

Erlend málefni voru á dagskrá þegar Bogi Ágústsson settist við Heimsgluggann. Hann fór yfir ræðu Trumps Bandaríkjaforseta frá í fyrradag – State of the Union - ástand og horfur í landinu. Hann ræddi líka um Úkraínu og sýn Alexanders Stubb Finnlandsforseta á stríðið, og um aukakosningar í Manchester í dag.

Á morgun koma saman til fundar ýmsir sérfræðingar um málefni barna og ungmenna til að ræða fíknivanda og stöðu mála, og hvernig unnið er að því að bregðast við og bæta hana. Tveir þessara sérfræðinga, þær Ragný Þóra Guðjonsen og Eva Dögg Sigurðardóttir, komu til okkar og ræddu málin.

Við spjölluðum líka um latínu. Heilmikil umræða hefur verið um latínukennslu í Menntaskólanum í Reykjavík síðustu daga. Geir Þ. Þórarinsson latínukennari í Háskóla Íslands sagði okkur málinu, uppruna þess og útbreiðslu.

Tónlist frá útsendingarlogg 2026-02-26

Elton John - Can you feel the love tonight.

Söngsveitin Fílharmónía, Óperukórinn í Reykjavík, Sinfóníuhljómsveit Íslands - O fortuna, úr Carmina Burana.

Una Torfadóttir - Í löngu máli.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Morgunvaktin

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Þættir

,