
Morgunvaktin
Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Óttast er að stjórnarkreppa sé framundan á ný í Frakklandi, eftir að forsætisráðherrann Francois Bayrou ákvað að láta franska þingið greiða atkvæði um traust á honum og stjórn hans. Ástæðan er mjög umdeilt fjárlagafrumvarp. Bayrou hefur setið í embætti í innan við ár. Torfi Tulinius kom á Morgunvaktina og ræddi um stöðu mála, aðdragandann og framhaldið.
Á níunda tímanum fjölluðum við um menningu og listir. Fyrst var farið austur á land en Jóhannes Kjarval málaði margar af sínum dásamlegu landslagsmyndum í landi Ketilsstaða í Hjaltastaðaþinghá. Tilviljun réði að hann kom þangað fyrst. Björg Björnsdóttir safnstjóri Minjasafns Austurlands rifjaði þá sögu upp.
Og uppúr hálf níu flettum við nýútkominni bók; Silfuröld revíunnar, með höfundinum Unu Margréti Jónsdóttur. Hún valdi líka nokkur lög.
Tónlist:
Serge Gainsbourg - La chanson de Prévert.
Soffía Karlsdóttir - Það er draumur að vera með dáta.
Jón Sigurðsson og Ragnar Bjarnason - Úti í Hamborg.
Ómar Ragnarsson, Hljómsveit Svavars Gests - Við heimtum aukavinnu.
Flosi Ólafsson, Pops - Það er svo geggjað.

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.