
Morgunvaktin
Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Albert Jónsson, fyrrverandi sendiherra, var fyrsti gestur Morgunvaktarinnar í dag og ræddi um alþjóðamál. Íran er í mjög veikri stöðu bæði hernaðarlega og pólitískt, og Ísraelsmenn hafa algera yfirburði gagnvart þeim í núverandi átökum, segir Albert. Hvað Trump Bandaríkjaforseti gerir skiptir miklu upp á framhaldið, en hann telur litlar líkur á að stór styrjöld brjótist út.
Þjóðhátíðardagur Grænlands er á morgun og af því tilefni heyrðum við í Ingu Dóru Guðmundsdóttur í Nuuk. Athygli heimsins hefur í auknum mæli beinst að Grænlandi síðustu mánuði.
Austur-evrópsku tónskáldin Leoš Janáček og Zoltán Kodály voru umfjöllunarefni Magnúsar Lyngdal í spjalli um sígilda tónlist í dag. Báðir nýttu þjóðlagaarfinn mikið í verkum sínum.
Tónlist:
Einar Scheving - Enjoy the silence.
Lýra String Quartet og Ragnheiður Gröndal - Rauðir skógar.
Anne Grete Preus - Fryd.

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.