
Morgunvaktin
Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Í tilefni af þjóðhátíðardeginum á morgun var fjallað um íslenskt samfélag og þróun þess, stöðu og horfur. Fyrst ræddu viðmælendurnir, Þórunn Sveinbjarnardóttir, forseti Alþingis og Helgi Gunnlaugsson, prófessor í félagsfræði, um árin undir Dönum og sjálfstæðisbaráttuna. Þau eru sammála um að hér sé gott samfélag en auðvitað megi gera betur á ýmsum sviðum.
Björn Malmquist fjallað um stjórnmál í Evrópu, og heiminum öllum raunar. Fundur sjö helstu iðnríkja heims fer nú fram í Kanada og þar verða tollar og hernaður Rússa í Úkraínu einkum til umræðu.
Sigyn Blöndal flutti pistil frá Filippseyjum. Hún talaði m.a. um sjálfstæðisbaráttu Filippseyinga, þjóðfána þeirra og eldfjöll.
Tónlist:
Alparós - Vilhjálmur Vilhjálmsson og Elly Vilhjálms,
Three wooden crosses - Randy Travis,
I should have known better - Bítlarnir.

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.