
Morgunvaktin
Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Á hverri einustu mínútu er ein bygging einhvers staðar í Evrópu rifin og enn eru mikil áform um niðurrif bygginga í kortunum á Íslandi. Anna María Bogadóttir arkitekt og rithöfundur ræddi við okkur, hún telur að bæði þurfi hugarfars- og kerfisbreytingar þegar kemur að skipulagsmálum og arkitektúr.
Mannlíf á Ströndum á undir högg að sækja. Fólki hefur fækkað í sveitarfélögunum þar þremur; Árneshreppi, Kaldrananeshreppi og Strandabyggð; fækkunin reiknast 33 prósent á aldarfjórðungi og það munar um minna. Fyrir liggja tillögur um eflingu byggðanna við vestanverðan Húnaflóa - við forvitnuðumst um þær og spjölluðum um lífið og tilveruna á Ströndum við Finn Ólafsson á Svanshóli í Kaldrananeshreppi.
Svo var það sígilda tónlistin. Magnús Lyngdal fjallaði um nokkrar óperur, við heyrðum brot úr óperum eftir t.d. Verdi, Wagner og Puccini, og í ýmsum flytjendum, t.d. Placido Domingo, Elinoru Buratto og Vínar-Fílharmoníunni.
Tónlist:
Lee Dorsey - Ya ya.
Lee Dorsey- Working in the coalmine.

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.