
Morgunvaktin
Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Við fjölluðum um stöðuna í stjórnmálunum í þættinum í dag. Ríkisstjórnin er einstaklega óvinsæl og fylgi stjórnarflokkanna sjaldan eða aldrei verið minna. Á sama tíma er engin sérstök ánægja með stjórnarandstöðuna í heild þó að einstakir flokkar mælist vel. Magnús Skjöld og Hjörtur J. Guðmundsson fóru yfir stjórnmálin.
Dönskukunnátta forseta Íslands hefur verið rædd í vikunni. Við forvitnuðumst um dönskukunnáttu landans almennt í samtali við Heimi Eyvindarson dönskukennara og skólastjórnanda.
Í lok þáttar lyftum við svo andanum með Magnúsi Lyngdal Magnússyni. Hann sagði okkur hvernig hann leiddist út í það að hlusta á sígilda tónlist.
Tónlist:
Tina Dickow - Hjertestorm.
Rasmus Seebach - Under stjernerne på himlen.
Kim Larsen - Papirsklip.

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.