
Morgunvaktin
Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Bogi Ágústsson settist við Heimsgluggann og fletti sögubókunum. Áttatíu ár eru um þessar mundir frá því að fjölda gyðinga í Danmörku tókst að sleppa undan Nasistum, yfir til Svíþjóðar. Við rifjuðum þetta upp og heyrðum brot úr dönskum þætti um flóttann og úr viðtali við mann sem var í hópnum.
Konur sinna meirihluta heimilisverka samkvæmt nýjum þjóðarpúlsi Gallup. Þar á meðal er ábyrgðin á því að kaupa í matinn, elda hann og ganga frá. Anna Sigríður Ólafsdóttir prófessor í næringarfræði kom til okkar með ráðlagðan dagskammt af jafnari skiptingu heimilisverka.
Hjónin Auður Vala Gunnarsdóttir íþróttakennari og Helgi Sigurðsson tannlæknir hafa undanfarin ár tekið þátt í uppbyggingu á Borgarfirði eystri, og stofnað þar fyrirtæki. Þau tóku þátt í verkefninu Brothættar byggðir þar, og síðar í dag segja þau frá reynslu sinni á tíu ára afmælismálþingi þess verkefnis. Við heyrðum af uppbyggingu þeirra og reynslunni af Brothættum byggðum.
Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir.
Tónlist:
Parton, Dolly - Joleen.
Hljómar - Bláu augun þín.
Hljómar - Fyrsti kossinn.
Þórir Úlfarsson, Hljómar - Mývatnssveitin er æði.

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.