Leynilegar greiðslur og kórónuveiran

Framkvæmdastjóri Upphafs, fasteignafélags GAMMA, þáði tugmilljóna króna ráðgjafagreiðslur frá byggingaverktaka sem vann milljarðaverkefni fyrir Upphaf. Lífeyrissjóðir töpuðu miklu á fasteignafélaginu. Gögn sem Kveikur komst yfir urðu til þess að málið var kært til lögreglu.

Kórónuveiran dreifist enn hratt um heimsbyggðina. Á meðan leita vísindamenn logandi ljósi að lyfjum og bóluefni sem duga á veiruna. Vísindamaður Íslenskrar erfðagreiningar rannsakar veiruna heima hjá sér því hann er sjálfur með veikina.

Hagkerfi heimsins eru í uppnámi vegna faraldursins, og óvissan á Íslandi er alger. Farsóttin hefur gerbreytt daglegu lífi fólks á örskömmum tíma.