Bráðnun jökla og byggingafúsk

Útlit er fyrir að árið 2020 verði eitt af þremur hlýjustu árum á jörðinni síðan mælingar hófust. Það eru sérstaklega vondar fréttir fyrir náttúrufyrirbæri úr ís. Vatnajökull hefur minnkað um þúsund ferkílómetra. Það er bara byrjunin.

Í seinni hlutanum höldum við áfram að skoða myglu í húsnæði á Íslandi. Fasteign er dýrasta fjárfesting flestra Íslendinga á lífsleiðinni. Hún er líka heimili okkar, hvíldarstaður og skjól. Hollt og gott umhverfi fyrir börnin okkar. En hvað ef við kaupum köttinn í sekknum?