Áhrif sjókvíaeldis og úrræðaleysi í vörnum Íslands

Fjöldi núverandi og fyrirhugaðra sjókvíaeldissvæða er í siglingaleiðum skipa. Yfirvöld lýsa áhyggjum af þessu. Kveikur rýnir líka í áform um sjókvíaeldi í Seyðisfirði.

Í seinni hluta þáttarins er fjallað um úrræðaleysi Íslands í varnarmálum. Heimsmyndin er breytt, ógnin meiri og geta Íslendinga til að bregðast við henni er lítil, því málaflokknum hefur verið útvistað til bandamanna um áratugaskeið.