Virkjanir og tölvukerfi lífeyrissjóða

Ekki hefur enn tekist að afgreiða þriðja áfanga rammaáætlunar á Alþingi, þótt fimm ár séu síðan verkefnastjórnin skilaði þáverandi umhverfisráðherra tillögum sínum. Hvernig stendur málið í dag og verður hægt að klára það fyrir komandi kosningar?

Kveikur skoðar einnig viðskipti í kringum eitt af stærri tölvukerfunum sem notað er til að halda utan um lífeyri landsmanna; Jóakim. Í ljós hefur komið að lykilstjórnendur í fyrirtæki sem þjónustar kerfið fyrir lífeyrissjóðina hafa hagnast um hundruð milljóna króna í viðskiptum við sjálfa sig, án vitneskju eigenda kerfisins.