Farsóttin á Íslandi og í New York og hvalræði í Skagafirði

Alfriðaður hnúfubakur var eltur klukkustundum saman á Skagafirði haustið 2018 og skotið á hann. Kveikur fjallar um aðfarir sem hvalasérfræðingur segir pyntingar á dýri í neyð, og við veltum upp spurningunni hvort yfirvöld geti rannsakað ásakanir um dýraníð þegar þau eru sjálf gerendur.

Gert er ráð fyrir að hápunkti kórónuveirufaraldursins verði náð síðar í vikunni, og erfiðast verður að manna Landspítalann þar sem tvöfalt til þrefalt fleiri starfsmenn þarf á COVID-deild en aðrar deildir.

Við fjöllum líka um ástandið í New York og tölum meðal annars við íslenskan smitsjúkdómalækni sem stýrir viðbrögðum á tveimur sjúkrahúsum í borginni. Við tölum svo við konu sem hefur búið í New York í sjö ár og situr nú heima hjá sér í hálfgerðu útgöngubanni, atvinnulaus.