Matarhagkerfið og stríð nútímans

Sífellt fleiri Íslendingar velja grænmeti frekar en kjöt. Bændur sem reyna að brjótast út úr kerfinu standa einir. Hvert stefnir íslenskur landbúnaður? Við skoðum kerfið sem stýrir því hvaða matur er framleiddur á Íslandi.

Í síðari hluta þáttarins veltum við því upp hvernig nútímastríð eru háð. Einu sinni þýddi stríð vopnaðar hersveitir sem ruddust yfir landamæri en ekki lengur. Þegar stríðið er falsfréttir eða tölvuhakk skipta landamæri engu máli.