Golfsprengjan á Íslandi er farin að hafa ýmsar neikvæðar afleiðingar. Einar Lyng Hjaltason, rekstrarstjóri golfvallarins í Hveragerði vakti athygli á því í gær að umgengni á golfvellinum í Hveragerð vera svo slæma að honum datt í hug að loka vellinum hreinlega. Flatir eins og gatasigti, glompur órakaðar og rusl út um allt. Við heyrðum í Einari í síðdegisútvarpinu í dag.
Hvernig verður áhugi á mat, matargerð og ljósmyndun að áhugaverðu matarverkefni á netinu? Því svaraði Garðar Valur Hallfreðsson tölvunarfræðingur á Egilsstöðum í þættinum í dag en hann er maðurinn á bak við Matgat.is.
Föstudagsgesturinn er grínistinn og fjöllistamaðurinn Sveinn Waage. Hann er nýútskrifaður úr leiðsögunámi og er líka á leið til Liverpool að horfa á sína menn í lokaumferð enska boltans. Hann kom okkur í gírinn fyrir þessa fyrstu alvöru ferðahelgi ársins.
Nú er kominn tími til að huga að pallinum og tréverkinu fyrir sumarið. Heima fyrir eða upp í bústað, fyrir þau sem eiga svoleiðis. Málarameistarinn Gylfi Már Ágústsson kenndi okkur réttu handbrögðin.
Margir hafa eflaust látið sig dreyma um að eiga fallegri garð en einfaldlega ekki vitað hvenær eða hvernig á að byrja eða hvernig á að bera sig að. Nú er komið íslenskt app sem er hugsað til að leiða fólk í gegnum garðyrkjuna skref fyrir skref — sniðið að íslenskum aðstæðum. Auður I. Ottesen og sonur hennar, Mörður Moli, komu í Síðdegisútvarpið í dag til að segja okkur frá Starfrænu garðyrkjudagatali sem byggir á ævistarfi Auðar í garðyrkju.
Hljómsveitin Korda Samfónía heldur útgáfutónleika á þriðjudaginn í Hörpu. Korda Samfónía er einstök hljómsveit sem telur 30–45 meðlimi og sameinar fjölbreyttan hóp tónlistarfólks: faglærða hljóðfæraleikara, háskólanema og einstaklinga í bata eftir lífsbreytandi áföll. Þau Sigrún Sævarsdóttir-Griffiths og Sigtryggur Baldursson komu í til okkar.