Mannlegi þátturinn

Ljósmyndir af hversdagsleikanum, íslenski refurinn og vísindaspjall með Eddu

Á morgun verður opnuð ljósmyndasýning í Ljósmyndasafni Reykjavíkur Hjartaþræðir: nándin í hversdeginum, ljósmyndir eftir Þórdísi Erlu Ágústsdóttur. Þórdís hefur myndað fólk, sem flest er henni náið eða vel kunnugt, yfir löng tímabil. Myndirnar segja sögur af ólíku fólki sem hún hefur fylgt eftir og velur stundir úr hversdeginum, lítil augnablik sem segja stærri sögu. Þórdís kom í þáttinn í dag og sagði frá.

Við fræddumst svo um íslenska refinn í dag en Ester Rut Unnsteinsdóttir spendýrafræðingur á Náttúrufræðistofnun hefur rannsakað tófuna um árabil og á næstunni verður haldið málþing á vegum Náttúrufræðistofnunar þar sem verður einmitt rætt um íslenska refinn, sérstöðu stofnsins, svipgerðir, erfðafræði og fleira. Ester sagði okkur frá refnum og málþinginu í dag.

Svo var það vísindaspjallið með Eddu Olgudóttur, en í dag sagði hún okkur frá rannsókn sem bendir til þess góðgerlar sem finnast í kimchi geti hjálpað til við losa líkamann við nanoplast.

Tónlistin í þættinum:

Sólarsamba / GÓSS (Magnús Kjartansson, texti Halldór Gunnarsson)

Í sól og sumaryl / Stebbi & Eyfi (Gylfi Ægisson)

Hr. Reykjavík / Stuðmenn (Valgeir Guðjónsson og Sigurður Bjóla Garðarsson)

Daglega fer mér fram / Mannakorn (Magnús Eiríksson)

UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Birt

20. maí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.

netfang: [email protected]

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Þættir

,