Mannlegi þátturinn

Undirskriftarlisti gegn brottfararstöð, hæglætisstefna í leikskólum og Jónatan um Önnu Vilhjálms

Frumvarp dómsmálaráðherra um brottfarastöð hefur hlotið gagnrýni, meðal annars vegna heimildar til vista þar börn. Umboðsmaður barna segir frumvarpið vera andstætt Barnasáttmálanum og brjóta gegn réttindum barna. Yfir tvö þúsund manns hafa skrifað nöfn sín á undirskriftarlista á Ísland.is til mótmæla þessu frumvarpi. Í gær bárust fréttir af breytingartillögu á frumvarpinu og mátti skilja á fréttum börn yrðu ekki vistuð á brottfararstöðinni, en Alma Mjöll Ólafsdóttir, sem kom í þáttinn í dag, segir það líti samt út fyrir ekki næg breyting, það aðeins verið færa til úrræðið fyrir börn, en það muni vera frelsissvipting engu síður. Alma sagði okkur frá þessu í dag, en hún er ábyrgðarmaður undirskriftarlistans.

Á ráðstefnunni finna taktinn koma saman bæði alþjóðlegir fræðimenn og starfandi leikskólakennarar til varpa ljósi á hæglæti í leikskólastarfi frá ólíkum sjónarhornum. Meðal fyrirlesara eru íslenskir leikskólakennarar sem segja frá eigin reynslu af þróunarverkefninu Stilla, þar sem hæglæti hefur verið innleitt í daglegt starf fjögurra leikskóla. Niðurstöðurnar sýna meðal annars þegar börn meiri tíma og rými eykst sjálfstjórn þeirra, félagsfærni og sköpun og leikur þeirra verður dýpri og merkingarbærari. Anna Lilja Sævarsdóttir, leikskólastjóri á Iðavöllum Akureyri og Agnes Gústavsdóttir, leikskólastjóri Aðalþings í Kópavogi komu í þáttinn í dag.

Jónatan Garðarson, okkar gamli samstarfsfélagi, ætlar koma til okkar næstu fimmtudaga og fræða okkur um íslenskt tónlistarlíf, hljómsveitir, lög, tónlistarfólk og fleira. Það eru ekki margir sem vita meira um íslenska tónlist en Jónatan og því mikil forréttindi ausa úr hans viskubrunni hér í Mannlega þættinum. Hann byrjaði í dag á því segja okkur frá Önnu Vilhjálms, það eru ekki til mörg lög hljóðrituð með henni, en Jónatan mun fræddi okkur um hana og hennar feril í dag.

Tónlistin í dag:

Á berjamó / Björgvin Halldórsson og Ragnhildur Gísladóttir (Gunnar Þórðarsson, texti Stefán Jónsson)

Jamaica Farewell / Harry Belafonte (Irving Burgie og Burgess)

Ég bíð við bláan / Anna Vilhjálms og Vilhjálmur Vilhjálmsson (Phil Spector, texti Jón Sigurðsson)

Fráskilin vestan / Anna Vilhjálms (Kolbrún Hjartardóttir og Linda Björk)

UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Birt

7. maí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.

netfang: [email protected]

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Þættir

,