Mannlegi þátturinn

Stóri plokkdagurinn, Björgvin Valdimars sjötugur og vísindaspjallið með Eddu

Stóri plokkdagurinn verður haldinn um allt land sunnudaginn 26. apríl. Dagurinn er orðinn fastur liður á vorin en hann var fyrst árið 2018. Tilgangurinn er hvetja almenning, félagasamtök, fyrirtæki og sveitarfélög til taka höndum saman og hreinsa nærumhverfið draga úr rusli í náttúrunni og vekja athygli á því litlar aðgerðir margra geta skilað miklum árangri. Björn Skúlason forsetamaki mun setja daginn formlega og hefja opnunarplokkið og hann var hjá okkur í dag ásamt Jóni Karli Ólafssyni, fyrrum umdæmisstjóra Rótarý Ísland, en Rótarý hreyfingin skipuleggur daginn með aðstoð bakhjarla.

Laugardaginn 9. maí verða haldnir tónleikar í Íþróttahúsinu Iðu á Selfossi þar sem Sinfóníuhljómsveit Suðurlands mun flytja verk Björgvins Þ. Valdimarssonar tónskálds og kórstjóra en þetta eru 70 ára afmælistónleikar hans og afmælisdagurinn er í dag. Á tónleikunum verða einsöngvarar og margir kórar sem starfa á Suðurlandi en Björgvin sjálfur er Selfyssingur í húð og hár og þar hófst tónlistarferill hans. Við spjölluðum við Björgvin í þættinum í dag.

Svo kom Edda Olgudóttir til okkar í vísindaspjallið. En í dag fræddi hún okkur um muninn á körlum og konum þegar kemur heilsufarskvillum tengdum offitu.

Tónlist í þættinum í dag:

Fólkið í blokkinni / Eggert Þorleifsson (Ólafur Haukur Símonarson)

Undir dalanna sól / Álftagerðisbræður og karlakór Reykjvíkur(Björgvin Þ Valdimarsson, texti Hallgrímur Jónsson frá Ljárskógum)

Það varst þú / Óskar Pétursson (Björgvin Þ Valdimarsson)

Smooth Sailing / Horace Henderson and his Orchestra (Thompson)

UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Birt

15. apríl 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.

netfang: [email protected]

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Þættir

,