Mannlegi þátturinn

Formlegur og óformlegur stuðningur mikilvægur, Barnadjass og enn um höfnunarótta

Við fræddumst í dag um rannsókn sem Þóra Katrín Erlendsdóttir, meistaranemi við í heilbrigðisvísindum við Háskólann á Akureyri vann. En tilgangur rannsóknarinnar var kanna upplifun ungmenna af stuðningi í kjölfar sjálfsvígs vinar. Þátttakendur voru einstaklingar sem höfðu misst vin í sjálfsvígi. Þóra Katrín var hjá okkur í dag og sagði okkur frá rannsókninni og niðurstöðunum, þar sem til dæmis kom fram mikilvægi formlegs og óformlegs stuðnings.

Félagasamtökin Barnadjass standa hátíðinni Barnadjass í Mosó sem verður haldin í 4. sinn í júní. Þetta er alþjóðleg hátíð þar sem börn á aldrinum 8-16 ára koma fram og spila djass eftir eyranu og spinna. Hátíðin er stofnuð eftir norskri fyrirmynd en listrænn stjórnandi beggja hátíða er Odd André Elveland, norskur djasstónlistarmaður og frumkvöðull í kennslu ungra barna í spila djass eftir eyranu og spinna. Guðrún Rútsdóttir er formaður félagasamtakanna Barnadjass og hún kom í þáttinn í dag.

Valdimar Þór Svavarsson ráðgjafi og stjórnandi Meðvirknipodcastsins kom svo til okkar og hélt áfram fræða okkur um mannlegu samskiptin. Í dag hélt Valdimar áfram tala um höfnunarótta.

Tónlist í þættinum í dag:

Ráðahagur / Moses Hightower (Moses Hightower (Andri Ólafsson, Magnús Trygvason Eliassen & Steingrímur Karl Teague)Texti, Andri Ólafsson & Steingrímur Karl Teague)

Pain / Ásgeir Ásgeirsson (Ásgeir Ásgeirsson)

Það jafnast ekkert á við jazz / Stuðmenn (Jakob Frímann Magnússon)

Er það satt sem þau segja um landann / HLH flokkurinn (erlent lag, texti Þorsteinn Eggertsson)

UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Birt

9. apríl 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.

netfang: [email protected]

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Þættir

,