Mannlegi þátturinn

Jákvæð sálfræði á þriðja æviskeiðinu, handboltalandsliðið 1961 og Guðný lesandi vikunnar

Þriðja æviskeiðið er tími þar sem margir staldra við og endurmeta stöðuna og forgangsröðun. Við forvitnuðumst í dag um hvernig jákvæð sálfræði getur nýst fólki sem komið er á þetta tímabili. Hrefna Guðmundsdóttir vinnusálfræðingur og sérfræðingur í jákvæðri sálfræði stendur fyrir námskeiðinu Þriðja æviskeiðið með augum jákvæðrar sálfræði, hún kom í þáttinn og sagði okkur betur frá þessu.

Svo hófst í dag nýr liður hjá okkur í Mannlega þættinum, þar sem Helga Lára Þorsteinsdóttir, safnstjóri RÚV safnsins, mun koma til okkar með gullmola af safni RÚV. Á safninu leynist endalaust af áhugaverðu efni sem gaman er rifja upp og í dag kom Helga Lára með í farteskinu, í tilefni þess þjóðin er nýstigin út úr enn einu handboltafárinu, kostulegt innslag frá 1961 þar sem Íslendingar áttu lið á HM í hanknattleik í Þýskalandi og það er ljóst það hefur mikið vatn runnið til sjávar síðan. Við heyrðum þetta innslag í fylgd Helgu Láru í dag. Í innslaginu heyrðist í fréttamanninum Sigurði Sigurðssyni, Hallsteini Hinrikssyni landsliðsþjálfara og Gylfa Þ. Gíslasyni menntamálaráðherra.

Lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var svo Guðný Ragnarsdóttir bókasafns- og upplýsingafræðingur á Stofnun Árna Magnússonar. Hún sagði okkur frá því hvaða bækur hún hefur verið lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Guðný talaði eftirfarandi bækur og höfunda:

Seasonal Quartet Árstíðakvartettinn (samanstendur af 4 bókum: Autumn, Winter, Spring og Summer) e. Ali Smith

The Magician (Galdramaðurinn) e. Colm Tóibín.

Lausaletur e. Þórdísi Helgadóttur

Salka Valka e. Laxness

Tónlist í þættinum í dag:

Traustur vinur / Upplyfting (Jóhann G. Jóhannsson)

Á æðruleysinu / KK (Kristján Kristjánsson)

Fyrsti kossinn / Hljómar (Gunnar Þórðarson, texti Ólafur Gaukur Þórhallsson)

UMSJÓN: HULDA G. GEIRSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Birt

9. feb. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.

netfang: [email protected]

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Þættir

,