Síðdegisútvarpið

Magnað handboltalandslið, Myrkir músikdagar, nagladekkjateljari og gróðurhúsatýpa sem elskar tómata.

Síðdegisútvarpinu stýrðu þennan mánudaginn þau Margrét Marteinsdóttir og Kristján Freyr.

Síðdegisútvarpið á Rás 2 fór í loftið nokkrum mínútum eftir ljóst var íslenska karlalandsliðið í handbolta væri komið í undanúrslit EM. Fyrsta mál á dagskrá í þætti dagsins var viðbrögð Jóns Halldórssonar, formanns HSÍ. Hann var í þann mund fara hitta íslenska liðið í búningsklefanum þegar hann ræddi við Síðdegisútvarpið.

Í gær fengu hlustendur Síðdegisútvarpsins beint í æð stemninguna af áhorfendapöllunum í leik Íslands og Svíþjóðar. Það var Anna Svava Knútsdóttir, leikkona sem var þá á línunni en eftir leik dagsins hringdum við í Halldór Halldórsson eða Dóri DNA, eins hann er oftast kallaður því hann var á leiknum.

Fyrir rétt tæpu ári tók Akureyrarbær í notkun rafrænan búnað sem telur fjölda bíla á nagladekkjum. Þá var rætt við Guðríði Friðriksdóttur, sviðsstjóra umhverfis og mannvirkjasviðs sem sagði nagladekkjanotkun í bænum færi vaxandi og því yrði linna. Við hringdum norður í Guðríði og spurðum hana hvernig staðan núna samkvæmt nagladekkjateljaranum.

Trump Bandaríkjaforseti hefur undanförnu, ítrekað hótað því ráðast á Íran. Fjölmenn mótmæli hafa verið í Íran frá því í lok desember og hefur klerkastjórnin ráðist á fólk og fjöldi mótmælenda verið drepnir. Óvíst er hve margt fólk hefur dáið en talið það séu minnsta kosti sjö þúsund en samkvæmt sumum heimildum er tala látinna komin upp í 30 þúsund.

Fyrir tíu dögum var sagt frá því bandarískt flugmóðurskip og nokkur fylgiskip væru á leið frá Suður-Kínahafi í átt Mið-Austurlöndum. er flotinn kominn á hafsvæðið suður af Mið-Austurlöndum en auk skipanna eru orrustuþotur, fjarstýrðar eldflaugar og orrustukafbátur. Kristján Guy Burgess, alþjóðastjórnmálafræðingur hefur verið fylgjast með vaxandi spennu á svæðinu og hann fór yfir stöðuna í Síðdegisútvarpinu.

Við rákumst á skemmtilega atvinnuauglýsingu þar sem yfirskriftin er, Gróðurhúsatýpa sem elskar tómata. Auglýsingin er frá Gróðrastöðinni Sunnu á Sólheimum sem er óska eftir ráða duglegan starfskraft í tómatahúsið. Þar segir vinnan geti verið líkamlega erfið en skemmtileg. Við slógum á þráðinn til Sólheima í Grímsnesi og ræddum við Valgeir Fridolf Backman, sem er í félagsmálunum á Sólheimum en hann segist reglulega rekast á gróðurhúsatýpu.

Tónlistarhátíðin Myrkir músíkdagar hefst á morgun, fimmtudag en hún er ein elsta tónlistarhátíð landsins, stofnuð árið 1980 af Tónskáldafélagi Íslands, sem vettvangur fyrir íslensk tónskáld til verk sín flutt. Í dag er áhersla hátíðarinnar flytja og kynna samtímatónlist með áherslu á nýja, íslenska tónlist og flytjendur í bland við erlend verk og erlenda flytjendur. Tónskáldið Páll Ragnar Pálsson er í stjórn hátíðarinnar og hann kom í Síðdegisútvarpið og sagði frá þessari mikilvægu tónlistarhátíð.

Frumflutt

28. jan. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Síðdegisútvarpið

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Rúnar Róbertsson og Margrét Marteinsdóttir halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Þættir

,