Lestin

Kalt Stálbarn, Volruptus og Skeng, Ást Fedru

Þeir Bjargmundur Ingi Kjartansson, Volruptus, og Árni E. Guðmundsson, Skeng, eru í hópi íslenskra listamanna sem búsettir eru í Berlín. Báðir hafa þeir gert það gott á sviði raftónlistar. Steindór Grétar Jónsson kíkir í heimsókn í það sem kalla mætti félagsheimili íslenskra raftónlistarmanna í Berlín, eða íbúð Árna.

Myndlistar- og tónlistarmaðurinn Karl Ställborn, sem einnig er söngvari rokksveitarinnar Skrattar, opnaði sýningu sína Kalt Stálbarn í Gallerí 1300° á Bergstaðastræti síðasta föstudag. Myndir Karls eru unnar með trélit á svartan pappír og þar mætast harka og mildi, rafmagn og fígúrur. Lestin leit við hjá honum þar sem hann var í óðaönn við hengja upp verkin nokkrum tímum fyrir opnun. Við heyrum það hér á eftir.

Katrín Guðbjartsdóttir skrifaði lokaritgerðina sína um ofbeldið í Ást Fedru, leikriti Söruh Kane frá árinu 1996. Verkið er í sýningu í Kassanum í Þjóðleikhúsinu í leikstjórn Kolfinnu Nikulásdóttur. Við ræðum ofbeldið og sýninguna við Katrínu.

Frumflutt

18. sept. 2023

Aðgengilegt til

18. sept. 2024
Lestin

Lestin

Fjallað er fordómalaust um menningu samtímans í öllum sínum fjölbreytileika, samfélagsmiðla, dægurmenningu, allt sem mótar líf okkar hér og og speglar frá degi til dags.

Umsjón: Lóa Björk Björnsdóttir og Bjarni Daníel Þorvaldsson.

Þættir

,