Lestin

Burning Man, kveikjuviðvaranir, samkvæmisdans í L.A.

Óli Hjörtur Ólafsson rifjar upp ævintýralega heimsókn sína á Burning Man hátíðina í Nevada eyðimörkinni árið 2011. Hátíðin var mikið í fjölmiðlum undanfarnar daga en 72 þúsund hátíðargestir voru innlyksa á hátíðinni sökum rigningar. Rigningin hafði breytt uppþornuðum vatnsbotninum sem kallaður er Playa af hátíðargestum, í forarsvað sem ómögulegt var keyra í.

Þórður Ingi Jónsson ræðir við samkvæmisdansarann Þorkel Jónsson sem búsettur í Los Angeles og við rifjum upp innslag frá því í ágúst í fyrra þegar Kristján Guðjónsson kynnti sér tilgang og virkni kveikjuviðvarana eða trigger warnings.

Frumflutt

7. sept. 2023

Aðgengilegt til

7. sept. 2024
Lestin

Lestin

Fjallað er fordómalaust um menningu samtímans í öllum sínum fjölbreytileika, samfélagsmiðla, dægurmenningu, allt sem mótar líf okkar hér og og speglar frá degi til dags.

Umsjón: Lóa Björk Björnsdóttir og Bjarni Daníel Þorvaldsson.

Þættir

,