• 00:06:45Eurovision tölfræði
  • 00:19:00Severance og vinnumarkaðir framtíðarinnar
  • 00:32:37Hafsteinn Gunnar og President Bongo: Á annan veg

Lestin

Kvikmyndatónlist samin eftir á, Severance, Eurovision tölfræði

Hafsteinn Gunnar Sigurðsson leikstýrði sinni fyrstu kvikmynd í fullri lengd árið 2011, grínmyndinni Á annan veg. Það var listræn ákvörðun hjá leikstjóranum hafa enga kvikmyndatónlist eða svo kallað score í myndinni, aðra en þá tónlist sem ómaði úr kasettutæki sögupersónanna. President Bongo, Stephan Stephensen, myndina í bíó og bauðst til þess gera score sem varð síðan aukaefni á DVD-myndinni. á miðvikudaginn, rúmum áratug eftir frumsýninguna, verður myndin sýnd í Bíó Paradís, með þessari eftir-á-gerðu kvikmyndatónlist. Þeir Stephan og Hafsteinn Gunnar eru gestir okkar í Lestinni í dag.

Pálmi Freyr Hauksson, hefur verið flytja pistla hér í Lestinni um sjónvarp frá ýmsum hliðum. Í dag heyrum við hugleiðingar hans um Apple TV þættina Severance, sem eru í leikstjórn Ben Stiller og tengingu þáttanna við bókina Homo Deus.

Við gerum upp Eurovision-helgina. Það fór eins og spáð hafði verið, hin sænska Loreen bar sigur úr býtum og það voru atkvæði dómnefndar sem tryggðu henni sigurinn. Margir hafa tjáð skoðun sína á niðurstöðunum, rýnt í allskyns Eurovision tölfræði. Við heyrum í Viktori Orra Valgarðssyni sem bar saman atkvæði dómnefnda og símakosninga í Eurovision keppnum frá 1999-2019.

Frumflutt

15. maí 2023

Aðgengilegt til

14. maí 2024
Lestin

Lestin

Fjallað er fordómalaust um menningu samtímans í öllum sínum fjölbreytileika, samfélagsmiðla, dægurmenningu, allt sem mótar líf okkar hér og og speglar frá degi til dags.

Umsjón: Lóa Björk Björnsdóttir og Bjarni Daníel Þorvaldsson.

Þættir

,