Lestin

Glósur úr Hegel fyrirlestri, heimsókn á nytjamarkað

Við förum í ferðalag með Önnu Gyðu Sigurgísladóttur sem er um þessar mundir með hugann við mergð sagna og sjónarhorna sem sveima í kringum okkur allan liðlangan daginn. Hún fer á stúfana og spyr gesti og gangandi: Hvað ertu hugsa einmitt núna? Í dag lítur hún inn á nytjamarkað í Austurveri og ræðir við forstöðumanninn þar, Karl Jónas Gíslason.

Á dögunum fundust um 4000 blaðsíður af glósum nemanda við Heidelberg háskóla frá árunum 1816-1818. Nemi þessi sat fyrirlestra þýska heimspekingsins G. W. F. Hegel sem eru taldir vera með þeim fyrstu sem hann hélt. Hegel er einn nafntogaðasti heimspekingur evrópskrar hugmyndasögu, sennilega áhrifamesti og oft sagður torskildasti líka. Við ræðum við Björn Þorsteinsson, prófessor í heimspeki við Háskóla Íslands, um þessar ný-uppgötvuðu glósur og hvað þær gætu þýtt fyrir skilning okkar á Hegel.

Frumflutt

14. des. 2022

Aðgengilegt til

15. des. 2023
Lestin

Lestin

Fjallað er fordómalaust um menningu samtímans í öllum sínum fjölbreytileika, samfélagsmiðla, dægurmenningu, allt sem mótar líf okkar hér og og speglar frá degi til dags. Hér heyra úrval þátta hverrar viku.