• 00:02:31Skerið - hljóðsería eða útvarpsleikrit?
  • 00:21:38Nýtt frá Björk
  • 00:30:36Geimverumyndin Nope

Lestin

Nope, nýtt frá Björk, hljóðserían Skerið

Nope, nýjasta mynd bandaríska leikstjórans Jordan Peele kom út í sumar. Geimverumynd sem gerist á hestabúgarði í Kaliforníu. Hingað í Lestina kemur Hrafn Jónsson, kvikmyndagerðarmaður og spekúlant til ræða Nope og þemu myndarinnar, sem varð til í miðjum heimsfaraldri.

Hljóðbókaveitan Storytel er í auknum mæli snúa sér framleiðslu hlaðvarpa og útvarpsleikrita - það sem þau kalla reyndar hljóðseríur. Fyrsta íslenska hljóðserían frá Storytel fór í loftið í sumar: Skerið, sem fjallar um íslenskan sjomla sem vaknar upp í óþekktu hótelberbergi eftir djamm á Tenerife. Hann kemst ekki af eyjunni, símasamband er stopult og dularfullir atburðir byrja eiga sér stað. Við ræðum við höfunda Skersins, parið Áslaugu Torfadóttur og Ragnar Egilsson.

Og við ætlum heyra nýja lagið frá Björk Guðmundsdóttur, Atopos, fyrsta lagið af væntanlegri plötu hennar Fossora, og ræða myndbandið sem inniheldur sveppi og sex bassaklarinett.

Frumflutt

6. sept. 2022

Aðgengilegt til

7. sept. 2023
Lestin

Lestin

Fjallað er fordómalaust um menningu samtímans í öllum sínum fjölbreytileika, samfélagsmiðla, dægurmenningu, allt sem mótar líf okkar hér og og speglar frá degi til dags. Hér heyra úrval þátta hverrar viku.