Lestin

Þrándur í kirkjugarði, pappakjólar, uppruni átaka um fóstureyðingar

Í vikunni bárust þær fréttir Hæstiréttur Bandaríkjanna íhugaði draga úr rétti kvenna til þungunarrofs í landinu, þegar vinnuskjal frá einum hæstaréttadómara lak til fjölmiðla. Fóstureyðingar hafa lengi verið átakamál í bandarísku samfélagi og í Lestinni í dag ætlum við rekja eina mögulega upprunasögu þeirra átaka, kannski var það 19 ára strákur og heimildarmynd um listheimspeki sem eru ástæðan fyrir þessum átökum

Við kíkjum niður í Hólavallagarð í Vesturbæ reykjavíkur og hittum þar Þránd Þórarinsson listmálara sem hefur undanfarna mánuði málað myndir af kirkjugarðinum og fólkinu sem þar hvílir.

HönnunarMars er genginn í garð og sýningarrými opna um allan bæ, en það eru líka ennþá einhverjir á lokametrunum í undirbúningi á sýningunum sínum. Helga Björnsson, fatahönnuður og listakona er ein af þeim. Og hún er búa til pappakjóla og pappaskartgripi.

Frumflutt

5. maí 2022

Aðgengilegt til

6. maí 2023
Lestin

Lestin

Fjallað er fordómalaust um menningu samtímans í öllum sínum fjölbreytileika, samfélagsmiðla, dægurmenningu, allt sem mótar líf okkar hér og og speglar frá degi til dags. Hér heyra úrval þátta hverrar viku.