Landssamband eldri borgara, LEB, hefur undanfarin misseri unnið að stefnumörkun í kjaramálum eldra fólks, í samstarfi við félaga í aðildarfélögunum 55, sem mynda Landssamband eldri borgara. Í þessari stefnumörkun eru lagðar fram ýmsar leiðir til úrbóta fyrir stjórnvöld og í dag kl.13 verður sérstakt málþing um kjör eldri borgara á Hilton Reykjavík Nordica og yfirskriftin er: Við bíðum... EKKI LENGUR. Helgi Pétursson er formaður Landsambands eldri borgara og hann kom í þáttinn í dag.
Við fengum vinkil frá Guðjóni Helga Ólafssyni í dag og í þetta sinn lagði hann vinkilinn að uppáhelltu kaffi, espresso og Goethe sjálfur var svo í aukahlutverki.
Kamilla Einarsdóttir rithöfundur var svo lesandi vikunnar í þetta sinn. Við fengum að vita hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Kamilla talaði um eftirtaldar bækur:
Hlustum frekar lágt e. Þórarinn Eldjárn
Kletturinn e. Sverri Norland
Vegamyndir e. Óskar Árna Óskarsson
Dauðaslóðin e. Söru Blædel
Lína Langsokkur e. Astrid Lindgren
Einar Áskell e. Gunnilla Bergström
Tónlist í þættinum
Ég vil bara beat músík / Ríó tríó (Dixon, Mason og Ómar Ragnarsson)
Í rökkurró / Helena Eyjólfsdóttir (Al Nevins, Artie Dunn, Marty Nevins og Jón Sigurðsson )
Númi / Kristín Lárusdóttir (Kristín Lárusdóttir)
UMSJÓN: GUNNAR HANSSON